Laus störf í leikskólanum í Stykkishólmi
Leikskólinn í Stykkishólmi auglýsir lausar stöður leikskólakennara eina frá 1. apríl og aðra frá 1. júní 2021. Einnig kemur til greina afleysingarstaða í sumar.... lesa meira
Leikskólinn í Stykkishólmi auglýsir lausar stöður leikskólakennara eina frá 1. apríl og aðra frá 1. júní 2021. Einnig kemur til greina afleysingarstaða í sumar.... lesa meira
Snjórinn sem féll í miklu magni til jarðar hér í gær var vel nýttur í dag. Hópur fór að venju í skóginn og naut þess að vera í gjörbreyttu landslagi þar að leik og á leikskólalóðinni urðu til tröllvaxnir snjókarlar sem eftir var tekið.... lesa meira
Á skipulagsdeginu 8. febrúar var bæði unnið að innra mati leikskólans og farið í skyndihjálp.... lesa meira
Í dag er bóndadagur og eins og löng hefð er fyrir í leikskólanum er haldið þorrablót þann dag. Eins og með allt annað þessa dagana þá varð að sníða blótið eftir aðstæðum og því engum utanaðkomandi boðið á blótið þetta árið. Blótið var mjög vel heppnað en dagana á undan voru börnin búin að útbúa þorrahatta og eldri deildir búnar að æfa skemmtiatriði.... lesa meira
Gleðilega jólahátíð. Litlu jólin og helgileikurinn tókust mjög vel og sem betur fer gátum við streymt beint til forelda elstu barnanna helgileiknum. Við fengum einn jólasvein í heimsókn og gættum ýtrustu sóttvarna og var sveinki með grímu undir öllu skegginu :) Vík og Bakki héldu sín litlu jól alveg sér og fengu líka jólasvein í heimsókn en sá sveinn kom innan úr húsi.... lesa meira
Stykkishólmsbær vill skapa fjölskylduvænna samfélag með frekari tækifærum til jákvæðrar samveru foreldra og barna yfir jólahátíðina sem og starfsfólks leikskólans með fjölskyldum sínum. Því vill Stykkishólmsbær bjóða foreldrum leikskólabarna afslátt af leikskólagjöldum í desember. Afslátturinn felst í því að lækka gjöldin sem nemur þremur dögum 28.-30. desember fyrir þá sem ekki nýta sína dvalartíma. Leikskólinn verður því opinn með lágmarksstarfsemi. ... lesa meira
Lesið fyrir nemendur sem eru með pólsku sem móðurmál... lesa meira
Þriðjudaginn 27. október var skipulagsdagur í leikskólanum. Þann dag vorum við á rafrænu málþingi um frjálsan leik barna sem bar heitið "Bara leikur?" það var Félag leikskólakennara sem hélt málþingið. Til þess að gæta allra sóttvarna vorum við á nokkrum stöðum í húsinu á meðan á málþinginu stóð.... lesa meira
Nú er leikskólinn byrjaður af fullum krafti eftir sumarfrí. ... lesa meira
Sumarhátíð leikskólans var haldin 19. júní s.l. og um leið hjóladagur. Lóðin var skreytt í tilefni dagsins og veðrið var alveg eins og við höfðum pantað. Bílastæðunum var lokað og þar voru eldri börnin með hjólin sín en þau yngri sem voru á þríhjólum og litlum jafnvægishjólum hjóluðu inni á lóðinni. Búið var að bóka lögguna til okkar í hjóla og hjálmaskoðun og biðu allir spenntir eftir því að fá skoðunarmiða á hjólin sín. ... lesa meira