Laus staða leikskólakennara

                                                Virðing – gleði – kærleikur

 

Leikskólinn í Stykkishólmi auglýsir lausa frá 1. janúar 2024 stöðu leikskólakennara, vinnutími frá kl 9:00 – 16:00

Gerð er krafa um góða tölvu-og íslensku kunnáttu, færni í samskiptum er nauðsynleg og metnaður fyrir leikskólakennslu. Vakin er athygli á því að ef ekki fást leikskólakennarar til starfa, munu aðrar umsóknir koma til greina. Reynsla af uppeldis-og kennslustörfum með ungum börnum er æskileg.

Í leikskólanum er vinnuvikan nú 38 klukkustundir fyrir 100% starf.

Athugið að starfið hentar öllum kynjum.

Allar nánari upplýsingar gefa Sigrún Þórsteinsdóttir leikskólastjóri og Elísabet Lára Björgvinsdóttir aðstoðarleikskólastjóri á netfanginu leikskoli@stykkisholmur.is og í síma 4338128 og 8664535.

Umsóknareyðublöð liggja frammi á skrifstofu Stykkishólmsbæjar og á íbúagáttinni á vef bæjarins www.stykkisholmur.is

Umsóknarfrestur er til 30. sept 2023. Öllum umsóknum verður svarað.