Laus staða leikskólakennara í Leikskólanum í Stykkishólmi

Leikskólinn í Stykkishólmi auglýsir lausa stöðu frá 1. apríl 2020.
Um er að ræða 100% afleysingarstöðu í eitt ár með möguleika á fastráðningu.
Gerð er krafa um:
? Leikskólakennaramenntun
? Góða tölvu- og íslensku kunnáttu
? Færni í samskiptum
? Metnað fyrir leikskólakennslu
Vakin er athygli á því að ef ekki fást leikskólakennarar til starfa, munu aðrar umsóknir koma til greina.
Reynsla af uppeldis- og kennslustörfum með ungum börnum er æskileg.
Athugið að starfið hentar bæði konum og körlum og í leikskólanum í Stykkishólmi starfa bæði konur og karlar.
Laun og starfskjör eru samkvæmt kjarasamningum Kennarasambands Íslands og viðeigandi stéttarfélags.
Nánari upplýsingar um störfin gefur Sigrún Þórsteinsdóttir leikskólastjóri í síma 433-8128/8664535 eða á netfanginu leikskoli@stykkisholmur.is.
Umsóknareyðublöð liggja frammi á skrifstofu Stykkishólmsbæjar og á vef bæjarins www.stykkisholmur.is á íbúagáttinni.
Umsóknarfrestur er til 12. mars n.k.