Lausar stöður í leikskólanum frá 8. ágúst 2022

                     

         Virðing ? gleði ? kærleikur

Leikskólinn í Stykkishólmi auglýsir lausar eftirfarandi stöður frá 8. ágúst 2022:
100% stöðu deildarstjóra í afleysingum
100% stöðu sérkennslustjóra
100% stöður leikskólakennara
Gerð er krafa um góða tölvu-og íslensku kunnáttu, færni í samskiptum er nauðsynleg og metnaður fyrir leikskólakennslu. Vakin er athygli á því að ef ekki fást leikskólakennarar til starfa, munu aðrar umsóknir koma til greina. Reynsla af uppeldis-og kennslustörfum með ungum börnum er æskileg.
Í leikskólanum er vinnuvikan nú 38 klukkustundir fyrir 100% starf.
Athugið að starfið hentar bæði körlum og konum.
Allar nánari upplýsingar gefa Sigrún Þórsteinsdóttir leikskólastjóri og Elísabet Lára Björgvinsdóttir aðstoðarleikskólastjóri á netfanginu leikskoli@stykkisholmur.is og í síma 4338128 og 8664535.
Umsóknareyðublöð liggja frammi á skrifstofu Stykkishólmsbæjar og á íbúagáttinni á vef bæjarins www.stykkisholmur.is
Umsóknarfrestur er til 29. apríl 2022. Öllum umsóknum verður svarað.