Lausar stöður við Leikskólann í Stykkishólmi

Leikskólinn í Stykkishólmi auglýsir lausar stöður frá og með 10. ágúst 2020 Um er að ræða þrjár 100% stöður leikskólakennara. Gerð er krafa um góða tölvu-og íslensku kunnáttu, færni í samskiptum er nauðsynleg og metnaður fyrir leikskólakennslu.
Vakin er athygli á því að ef ekki fást leikskólakennarar til starfa, munu aðrar umsóknir koma til greina. Reynsla af uppeldis-og kennslustörfum með ungum börnum er æskileg. Athugið að starfið hentar bæði körlum og konum.

Einkunnarorð leikskólans eru virðing ? gleði ? kærleikur. 

Allar nánari upplýsingar gefa Sigrún Þórsteinsdóttir leikskólastjóri og Elísabet Lára Björgvinsdóttir aðstoðarleikskólastjóri á netfanginu leikskoli@stykkisholmur.is og í síma 4338128/8664535
Umsóknareyðublöð liggja frammi á skrifstofu Stykkishólmsbæjar og á íbúagátt Stykkishólmsbæjar.
 
Umsóknarfrestur er til 12. júní 2020. Öllum umsóknum verður svarað.