Þorrablót leikskólans

Á bóndadaginn var haldið þorrablót í leikskólanum. Nemendur og kennarar gerðu ýmislegt til skemmtunar og fróðleiks í tilefni dagsins og klukkan 15 hófst svo hið eiginlega þorrablót. Börnin buðu til þorraveislu öllum þeim karlmönnum sem skipa stóran sess í lífi þeirra. Þarna mátti því sjá feður, afa, langafa, bræður, vini og frændur sem börnin sýndu stolt möppur sínar. Í salnum var búið að koma fyrir þrautabraut og hlaðborði með þorramat á og inni á deildum var ýmis verkefni að finna. Ekki er annað að sjá en að almenn ánægja sé með þetta snið á þorrablóti leikskólans. Myndir frá þorrablótinu eru farnar að berast inn á myndasíðuna okkar og munu deildarstjórarnir smátt og smátt bæta þar við myndum.