Umsóknir fyrir næsta vetur

Leikskólinn í Stykkishólmi minnir á að umsóknir um leikskólavistun að hausti 2023, þurfa samkvæmt skráningar- og innritunarreglum að hafa borist fyrir 1. maí. Umsóknareyðublöð má nálgast á ,,mínum síðum" á heimasíðu Sveitarfélagsins Stykkishólms. Úthlutun leikskólaplássa fer fram í maí.