Leikskólinn í Stykkishólmi minnir á að umsóknir um leikskólavistun að hausti 2025, þurfa samkvæmt skráningar og innritunarreglum að hafa borist fyrir 1. maí.
Umsóknareyðublöð má nálgast í leikskólanum og á ,,mínum síðum” á heimasíðu Sveitarfélagsins Stykkishólms. Úthlutun leikskólaplássa fer fram í maí.