Útskrift elstu nemenda leikskólans

Miðvikudaginn 28. maí fór fram formleg útskrift elstu nemenda leikskólans. Börnin undirbjuggu dagskrá og buðu fjölskyldum sínum á viðburðinn. Þau völdu sér tvö lög til að vinna með, þau vinsælustu þegar líða fór á veturinn, Róa með VÆB og Ég er frjáls úr sýningu Þjóðleikhússins á Frost. Allir skemmtu sér vel og sýndu börnin mjög mikla útsjónarsemi við undirbúninginn á atriðum sínum. Tuttugu börn útskrifast þetta vorið og eru þau búin að fá nasaþefinn af grunnskólanum, bæði með heimsóknum þangað í vetur og vorskóla í þrjá daga í maí eftir hádegi. Sjá má myndir frá útskriftinni og fleiru úr starfinu á myndasíðunni okkar.