Útskriftarhátíð var haldin í leikskólanum fimmtudaginn 28. maí kl. 17. Það er stór stund fyrir foreldra og nemendur þegar einu skólastigi líkur og spennublandin tilhlökkun fyrir því sem tekur við í nýjum skóla. Átján nemendur útskrifuðust þetta vorið. Börnin voru búin að undirbúa dagskrá til að sýna foreldrum sínum og hinum árgöngum leikskólans. þau völdu sér lög til að vinna eftir og voru það lög úr sýningu Þjóðleikhússins á Línu langsokk sem urðu fyrir valinu, lagið um Línu og sjóræningjalagið. Mjög mörg barnanna höfðu séð sýninguna í Þjóðleikhúsinu og nóg af hugmyndum að vinna úr. Afhent voru útskriftarskjöl og birkiplöntur í tilefni þessara tímamóta og grunnskólinn færði þeim viðurkenningu fyrir þátttöku í vorskólanum. Foreldrahópurinn færði leikskólanum nokkra sjónauka í kveðjugjöf og fær kærar þakkir fyrir. Í útskriftinni tók Þóra Magga skólastjóri grunnskólans á móti mynd sem krakkarnir höfðu málað af sér. Myndin mun taka á móti þeim í stofunni þeirra í grunnskólanum þegar þau mæta í haust og tengja þannig táknrænt skólana saman.



