Vinnudagur á leikskólalóðinni - myndir

Vaskur hópur foreldra og starfsmanna með Siggu Lóu í verkstjórn og Jón Beck aðalreddara réðst í ýmis verkefni á leikskólalóðinni síðdegis í gær, miðvikudaginn 19. júní. Hafist var handa kl. 17 og endað í grilli tveimur tímum síðar.

Á meðal verkefna dagsins var þessi pallur við útieldhúsið okkar sem sést hér á meðfylgjandi mynd, en strax í morgun voru börnin komin þar í leik. Þetta var reglulega skemmtilegt og gaman að sjá hvað allir demdu sér í verkin af miklu frumkvæði og fundu góðar lausnir. 
Myndir eru komnar inn á heimasíðu leikskólans sem sjá má með því að smella hér.