Fréttir

Síðasti danstímarnir

Í dag voru síðustu danstímarnir en undanfarnar vikur hefur Jón Pétur danskennari kennt börnum í árgangi 2021 og 2022 að dansa. Síðasti tíminn var opinn tími þar sem foreldrum var boðið að taka þátt. Unglingar úr Grunnskólanum tóku einnig þátt en þau hafa verið Jóni Pétri til aðstoðar í tímunum.

Aðalfundur Foreldrafélagsins

Aðalfundur Foreldrafélags Leikskólans var haldinn í gærkvöldi. Víglundur fráfarandi formaður til nokkurra ára var nú að kveðja stjórnina og fékk afhenta gjöf fyrir sérstsaklega mikla greiðasemi í gegnum árin. Alltaf boðinn og búinn til að ,,græja" hlutina. Ákveðið var að hækka gjald í foreldrasjóð úr kr. 450,- í kr. 600,- á mánuði fyrir hvert barn frá og með næstu mánaðarmótum. Miklar og góðar umræður urðu um verkefni félagsins síðasta starfsár og það sem framundan er og mikill hugur í fólki. Ný stjórn var kosin og framboð urðu svo mörg að ákveðið var að skipa aðalstjórn og varastjórn með öllum virkum. Það eru því 10 öflugir foreldrar sem stýra næsta starfsárið en stjórnina skipa: Björg Gunnarsdóttir formaður, Sara Rún Guðbjörnsdóttir gjaldkeri, Soffía Adda Andersen Guðmundsdóttir ritari, Elín Sóley Reynisdóttir, Gunnhildur Gunnarsdóttir, Helga Hjördís Björgvinsdóttir, Hilda María Sigurðardóttir, Jakob Johann Karlsson, Lilja Rún C. Jensen og Vignir Þór Ásgeirsson.

Sumarlokun leikskólans 2026

Leikskólinn lokar vegna sumarleyfa frá og með 10. júlí og opnar aftur 10. ágúst á venjulegum opnunartíma kl. 7:45-16:15. Við óskum öllum gleðilegs sumars og hittumst kát og hress í ágúst.

Laus staða leikskólakennara

Leikskólinn í Stykkishólmi auglýsir lausa stöðu: 100% staða leikskólakennara frá 17. ágúst 2026. Umsóknarfrestur er til 9. júlí 2026. Sjá nánar ...

Útskriftarferð á Gráukúlu

Þann 1. júní var haldið í útskriftarferð á Gráukúlu í sautjánda skiptið. Mikil þátttaka var að venju en 16 nemendur (vantaði 2) fóru í ferðina og ennþá fleiri fullorðnir. Ein 9 mánaða snót fékk að fljóta með í poka framan á mömmu sinni og er sú yngsta sem farið hefur með í ferðina til þessa. Við þökkum öllum þeim sem gerðu okkur kleift að fara ferðina kærlega fyrir aðstoðina með bestu kveðjum úr leikskólanum.

Útskriftarhátíð árgangs 2020

Útskriftarhátíð var haldin í leikskólanum fimmtudaginn 28. maí kl. 17. Það er stór stund fyrir foreldra og nemendur þegar einu skólastigi líkur og spennublandin tilhlökkun fyrir því sem tekur við í nýjum skóla. Átján nemendur úrskrifuðust þetta vorið. Börnin voru búin að útbúa dagskrá og tóku við viðurkenningu frá leikskólanum og einnig fyrir þátttöku þeirra í vorskólanum í grunnskólanum.

Umsóknir um leikskólavistun næsta vetur

Eins og fram kemur í innritunarreglum leikskólans þarf umsókn að liggja fyrir í síðasta lagi 1. maí ef óskað er eftir leikskóladvöl að hausti. Við viljum því hvetja þá foreldra sem þetta gæti átt við, til að huga að umsóknum.

Lausar stöður í Leikskólanum í Stykkishólmi

Leikskólinn í Stykkishólmi auglýsir lausar stöður: 100% stöðu deildarstjóra. 100% stöðu leikskólakennara. Tæplega 60% stöðu við ræstingar. Í stöðu deildarstjóra og leikskólakennara er gerð krafa um leikskólakennaramenntun eða aðra sambærilega menntun. Góð tölvu-og íslensku kunnátta og færni í samskiptum er nauðsynleg. Betri vinnutími hefur verið innleiddur að fullu í leikskólanum. Vakin er athygli á því að ef ekki fást leikskólakennarar til starfa koma aðrar umsóknir til greina. Athugið að starfið hentar öllum kynjum. Stöðurnar eru lausar frá 10. ágúst 2026. Umsóknarfrestur er til 11. maí 2026. Öllum umsóknum verður svarað.

Laus staða í leikskólanum í Stykkishólmi

Leikskólinn í Stykkishólmi auglýsir lausa 100% afleysingastöðu, viðkomandi þarf að geta hafið störf sem fyrst. Góð íslensku kunnátta er skilyrði, færni í samskiptum er nauðsynleg og metnaður fyrir leikskólakennslu. Vakin er athygli á því að ef ekki fást leikskólakennarar til starfa, munu aðrar umsóknir koma til greina. Reynsla af uppeldis-og kennslustörfum með ungum börnum er æskileg.

Sögustund.is í leikskólanum

Mánudaginn 19. janúar fengum við til okkar Kristjönu Skúladóttur leikkonu frá Sögustund.is með sýningu. Sýningin var í boði foreldrafélagsins og var afar skemmtileg og náði vel til barnanna sem hljógu mikið og vel af sögunum af þeim Rakel og Rúsínu og Jófríði nágranna þeirra og tröllastráknum Grjótfinni Drullmundarsyni og ævintýrum þeirra. Við þökkum foreldrafélaginu vel fyrir.