Fréttir

Leikskólinn í tölum

Haustið fór vel af stað hjá okkur og fyrir fyrsta fund skóla-og fræðslunefndar tókum við saman nokkrar staðreyndir um leikskólann.

Laus staða leikskólakennara

Leikskólinn í Stykkishólmi auglýsir lausa frá 1. janúar 2024 stöðu leikskólakennara, vinnutími frá kl 9:00 – 16:00. Gerð er krafa um góða tölvu-og íslensku kunnáttu, færni í samskiptum er nauðsynleg og metnaður fyrir leikskólakennslu. Vakin er athygli á því að ef ekki fást leikskólakennarar til starfa, munu aðrar umsóknir koma til greina. Reynsla af uppeldis-og kennslustörfum með ungum börnum er æskileg. Í leikskólanum er vinnuvikan nú 38 klukkustundir fyrir 100% starf. Athugið að starfið hentar öllum kynjum. Allar nánari upplýsingar gefa Sigrún Þórsteinsdóttir leikskólastjóri og Elísabet Lára Björgvinsdóttir aðstoðarleikskólastjóri á netfanginu leikskoli@stykkisholmur.is og í síma 4338128 og 8664535. Umsóknareyðublöð liggja frammi á skrifstofu Stykkishólmsbæjar og á íbúagáttinni á vef bæjarins www.stykkisholmur.is Umsóknarfrestur er til 30. sept 2023. Öllum umsóknum verður svarað.

Fagháskólanám

Nú eru fjórir starfsmenn leikskólans byrjaðar í fagháskólanámi en það er nýtt fyrirkomulag á leikskólakennara námi við Háskóla Íslands og Háskólann á Akureyri. Þetta nám er sniðið að fólki sem er búið að vinna lengi en vantar kannski eitthvað upp á stúdentsprófið.

Dans byrjar á mánudaginn

Mánudaginn 11 september kemur Jón Pétur danskennari og verður með námskeið fyrir tvo elstu árgangana eins og hann hefur gert undanfarin ár.